DC-20Fyrir heimili og fyrirtæki
DC Fast Charger 20 kW
DC-hraðhleðslustöð, 20 kW, fyrir fyrirtæki, bílastæði og bílaflota.
496.000 kr.Smásöluverð með VSK
DC-20-W-CCS1
Fagaðili? Sæktu um aðgang að fyrirtækjasvæðinu.
Sótt í Síðumúla 1 eða sent með Póstinum eða Dropp.
Helstu eiginleikar
DC-hraðhleðslustöð, 20 kW, fyrir fyrirtæki, bílastæði og bílaflota. Stöðin er fest á vegg og er með einum 7 m hleðslukapli með CCS1-tengi. Millistykki úr CCS1 í CCS2 fylgir, svo stöðin hleður bæði bíla sem fluttir eru inn frá Norður-Ameríku og evrópska bíla. Hún vinnur með öllum umsjónarkerfum sem styðja OCPP 1.6J. Uppsetning er ekki innifalin; löggiltur rafverktaki þarf að tengja stöðina við þriggja fasa rafmagn.
Tæknilegar upplýsingar
| Vörunúmer | DC-20 |
|---|---|
| Flokkur | DC-hleðslustöðvar |
| Afl | 20 kW |
| Útgangsspenna | 200–1000 V DC |
| Inntak | 380 V AC ± 20 %, þriggja fasa |
| Tengi | Einn hleðslukapall með CCS1-tengi; millistykki í CCS2 fylgir. |
| Kapall | 7 m |
| Samskiptastaðlar | OCPP 1.6J; ISO 15118 með Autocharge (hleðsla hefst sjálfkrafa eftir verksmiðjunúmeri bílsins) |
| Nettenging | 4G og Wi-Fi |
| Auðkenning | RFID |
| Varnarflokkur | IP54 |
| Skjár | 4,3 tommu snertiskjár |
| Mál | 64,5 × 45,4 × 17 cm (veggstöð) |
| Vottanir | CE, TÜV |
| Uppsetning | Á vegg |
Heimild: tæknilýsing framleiðanda.

